Alixra

Gervigreind í ferðaþjónustu

Gervigreind fyrir íslensk ferðaþjónustu­fyrirtæki

Viðskiptavinirnir spyrja klukkan 23:00 úr öðru tímabelti, veðrið endurskrifar dagskrána og sömu ferðinni þarf að lýsa á ólíkan hátt á fjórum stöðum. Allt þrennt er hægt að leysa.

Svarað klukkan 23:00, á þeirra tungumáli

„Fer ferðin á morgun?“ „Þarf ég mannbrodda?“ „Má mamma koma með, hún er 74 ára?“ Svarað þegar þau spyrja, ekki þegar þú vaknar.

Sjá þjónustuna

Ein ferð, fjórar lýsingar

Vefurinn þinn, GetYourGuide, Instagram og fréttabréfið vilja hvert sína útgáfu af sömu ferðinni. Skrifaðu hana einu sinni og lagaðu hana að öllum fjórum.

Sjá þjónustuna

Veðrið breytist og allir fá að vita

Þegar aðstæður færa brottför eru drög að skilaboðum til allra bókaðra gesta tilbúin strax — á réttu tungumáli, með nýja tímanum.

Umsagnir sem þú þarft ekki að leita að

TripAdvisor, Google og Facebook á einum stað, með drögum að svörum í þínum stíl. Svarið fer samt frá þér.

Sjá þjónustuna

Fyrirspurnir sem vert er að svara fyrst

Raunverulegar bókunarfyrirspurnir aðskildar frá endursöluaðilum og ruslpósti, svo þær sem skila bókun bíði ekki á eftir fjörutíu sem gera það ekki.

Sjá þjónustuna

Að vera svarið, ekki tíundi hlekkurinn

Fleiri spyrja nú gervigreind um „best glacier tour from Reykjavík“ en fletta í leitarniðurstöðum. Svarið er byggt á heimildum — þetta snýst um að tryggja að þú sért í þeim.

Sjá þjónustuna

Hvar á að byrja

Þú þarft ekki að gera þetta allt.

Veldu það sem pirrar þig mest

Flest fyrirtæki byrja á einu verki — því sem étur heilan morgun í hverri viku.

Við skoðum það saman

Fyrsti tíminn er ókeypis. Ef gervigreind er ekki rétta svarið segjum við það.

Við smíðum fyrst litlu útgáfuna

Eitthvað raunverulegt sem þú getur prófað, ekki tillaga.

Fyrsti tíminn kostar þig ekkert.

Í versta falli ferðu með skýrari mynd af því hvað gervigreind getur — og getur ekki — gert fyrir fyrirtækið þitt.

Bóka ókeypis tíma